...
2014 var gerður rafrænn samningur við Sjúkra-
tryggingar Íslands þannig að nú eru styrkir greiddir beint inn á meðferðar aðilann og dregst því frá þeim kostnaði sem foreldrar þurfa að greiða.
Styrkurinn er 150.000 kr. fyrir meðferð í báða tann-
boga og 100.000 kr. í annan tannboga.
SÍ veitir einnig styrk til þeirra sem þurfa gómaplötur og er greiðslufyrirkomulag eins háttað eða beingreiðsla inn til meðferðaraðila.
Ef umfang bitskekkju er að þeirri stærðargráðu að ekki er unnt að leiðrétta skekkjuna eingöngu með tann-
réttingum heldur er þörf á inngripi kjálkafærslu gilda sér reglur varðandi styrki frá Sjúkratryggingum Íslands.
Sjá nánar á vef SÍ
Lára Björk Einarsdóttir
Turninn Smáratorgi