...
Tannréttingar Láru Bjarkar bjóða upp á tannréttingar fyrir börn og fullorðna. Á stofunni sem hefur aðsetur á Tannlæknastofunni í Turninum starfa 10 frábærar konur. Sumarið 2022 opnuðum við inn í enn stærra rými og settum stofuna í nútímalegri horf. Okkar mat er að þetta er flottasta stofa landsins 😉

Lára Björk reynir eftir fremsta megni að kynna sér það nýjasta sem er á markaðnum og hefur meðal annars aflað sér réttinda á sviði „ósýnilegra“ tannréttinga. Lára Björk er ein af þeim sem hefur hvað lengsta reynslu af notkun Invisalign góma (2011).
Þú finnur okkur á 14. hæð í Turninum Kópavogi, Smáratorgi 3 — þar er gott aðgengi fyrir alla og nóg af bílastæðum.
LBE Tannréttingar slf. kt. 460114-0550 starfar undir leyfi Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis.
Tannlæknir, sérfræðingur í Tannréttingum

Lára Björk útskrifaðist sem tannlæknir (Cand. Odont) frá Háskóla Íslands árið 2003. Á árunum 2003–2006 starfaði hún sem almennur tannlæknir á Íslandi en útskrifaðist með sérfræðiréttindi í tannréttingum frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2009.
Á árunum 2009–2011 starfaði Lára Björk sem tannréttingasérfræðingur í Holbæk í Danmörku auk þess sem hún kenndi klínískar tannréttingar við tannlæknadeild Kaupmannahafnarháskóla.
Lára hefur starfað á Tannlæknastofu Turnsins síðan 2011 og verið einn af þremur eigendum tannlæknastofunnar frá 2012.
Móttökustjóri

Sóley er sú sem tekur að sér móttökustjórn. Sóley er s.s. brosið sem tekur á móti þér í móttökunni og hlýja röddin sem svarar símtölunum. Sóley er sú sem hjálpar þér við tímabókun sem og greiðslur.
Tannfræðingur

Greta er nýjasta viðbótin okkar, menntaður tannfræðingur frá háskólanum í heimabæ sínum Kaunas, Litháen (2016). Greta sinnir öllum skjólstæðingum af alúð og nærgætni enda unnið við fagið sitt víða um heim síðan hún kláraði námið.
Framkvæmdarstjóri

Aðalbjörg (Alla) er ein helsta stoð og stytta Láru og hefur verið hennar hægri hönd frá upphafi.
Alla er ein af þeim sem þú sérð inn á stofu, taka á móti þér og sinna öllum þeim verkefnum að beiðni Láru sem þurfa. Hvort sem það er að taka myndir, herða á tækjum eða bara létt spjall við skjólstæðinga.
Alla hefur yfir 15ára reynslu af starfi sem aðstoðarmanneskja tannlæknis og þekkir því vel til.
Lára Björk Einarsdóttir
Turninn Smáratorgi