...

Föst tæki / spangir / teinar

Venjulegar
spangir

1.000.000 kr.

Sjá nánari verðlista

1 ½ – 2 ár

Föstu tækin, eða það sem við í daglegu tali þekkjum sem spangir eða teina, samanstanda af kubbum sem eru límdir fastir á yfirborð tannanna.
Við bjóðum bæði upp á stál kubba og plast (glæra).  Plast kubbarnir eru þeir sem sjást minna en þola ekki álag eins vel.  Valið er þitt, en við leiðbeinum hvað gæti hentað hverjum m.t.t. bits og aldurs.

Tækin sem við notum heita “Damon”.  Damon er hágæða hönnun með sjálflæsandi kubbum.  Hugsunin á bakvið Damon er að eftirlitstímar eru færri á meðferðartíma, kraftarnir dreifðari og álagið þal. minni en tannfærslan hraðari.  Sjálflæsandi kubbar þýðir að ekki þarf að setja teygjur utan á hvern kubb, það minnkar óþrifnað sem er enn einn kosturinn á bakvið þessa tækni.

Eftirlitstímar á meðferðartímabili með þessa tegund tækja eru á u.þ.b. 8 vikna fresti (hefðbundnir kubbar og önnur tækni miðaðst við eftirlit á 4-6 vikna fresti).

 

Skoða myndir